Djammsögur af gellunum
24.09.2006 19:09:34 / habby

Whats up

Takk æðislega fyrir gærkvöldið stelpur! Við verðum að gera þetta oftar. Það vantaði bara Írisi :) Annars voru bara allar 8 mættar. Dagurinn byrjaði þannig að við fórum á leikinn saman þar sem Grindavík tapaði og erum við því fallin niður í 1. deild. Við fengum okkur bjór á leiknum og eftir leikinn lá leið okkar hingað heim þar sem við sátum að spjalla og sötra. Svo fóru allir heim að græja sig og síðan var mæting klukkan 19:00 heim til Gústu og voru allar stundvísar nema hún Gréta Dögg sem mætti klukkutíma seinna. Maturinn var geðveikt góður miðað við að við vorum í glasi þegar við elduðum kjúllann. Þegar leið á kvöldið fjölgaði fólkinu og svo fóru sumir í staffapartý og enduðum við svo allar á ballinu og sumar á láka eftir ballið. Og maður er bara í helvíti góðu drykkjuformi :) Annars var þetta kvöld bara mjög skemmtilegt og legg ég til að við höfum svona hitting aftur, allavega einu sinni fyrir jól.

Kveðja Hrafnhildur Guðjónsdóttir


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 15:34:49 / habby

Fréttir af okkur..

Ætla setja hérna inn nokkra punkta um okkur...

- Heiða búin að fara til Usa
- Gréta og Kristín búnar að fara til Benedorm í 3 vikur
- Marta búin að fara til Mexíkó í útskriftarferð
- Elva búin að fara til Spánar
- Hrafnhildur T flutt inn í nýju íbúðina sína :) Hverjar eru búnar að heimsækja hana??
- Íris býr enn á Akureyri og hefur maður bara ekkert séð hana síðan hún flutti :-/
- Gústa er úti á Flórída núna
- Marta er úti í Englandi núna
- Tinna er að vinna á Egilstöðum hjá 118 já
- Kristín er á siglufryði í sumar
- Gréta og Ronald hætt saman... 

Framundan:

- Þjóðhátíð
- Ágústa, Gréta,Heiða og Hrafnhildur T ætla að skella sér :)
- Hrafnhildur og Gunni að fara út til Costa del sol 3. ágúst
- Tinna að fara með vinkonum sínum til Costa del sol 10.ágúst
- Elva og Stebbi að fara út í endann ágúst til spánar
- Íris er að fara til London með kærastanum 27.-31.júlí

Endalaust flakk á okkur í sumar! Enda ekki skrýtið að við höfum ekki allar hist í sumar!




» 4 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 23:30:27 / habby

Ekki að meika það með þessa síðu!

Það kemur aldrei blogg hérna inn og þessi síða er bara nánast gleymd. Bara hissa á að það eru 5 heimsóknir í dag... Annars var Hrafnhildur T að fá íbúðina sína afhenta um helgina og er ekki málið að fara og finna innflutningsgjöf handa gellunni og kíkja í heimsókn??


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 17:24:22 / habby

17.júní framundan...

Jæja sjómannadagshelgin liðin og var hún  ekkert skemmtileg í samanburði við sjómanndagshelgina í fyrra sem var algjör snilld. Veðrið um helgina var frekar ömurlegt og svo var svo mikið af fólki á djamminu á laugardagskvöldið að það var bara heitt og mikill troðningur. En tvítugsafmælið hennar Gústu var mjög skemmtilegt :)

En ég veit að það er bara mánudagur en ég er strax farin að hugsa um næstu helgi :) Á laugardaginn verður VONANDI gott veður og þá ætlum við nokkrar að skella okkur í lónið og hafa það notalegt og fara svo á djammið í höfuðborginni um kvöldið.

Hverjar eru til í að koma með? Endilega kommenta :)

Kv. Habby


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 18:17:10 / Hrafnhildur T

partý partý

;) jæja stelpur ég greinilega sakna ykkar svona mikið!! Var að skrifa blogg áðan og er ekki að meika það hvað ég hitti ykkur sjaldan og endalaust langt síðan síðast! ohhhh Þannig að ég er búin að ákveða að hafa Gellupartý á Ljósanótt...ég veit ég veit það er langt í það Eeeeeen eruði game?? hahaha er samt að telja núna hvað er langt í þetta. 3 mánuðir. Kræst! Þá er meirað segja skólinn byrjaður :$ æ fokk it - sjáum bara til heh

Þá vitiði allavega hvað ég er að hugsa um að gera!! naha


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 23:25:50 / habby

Styttist í lokapróf

Lokaprófin byrja í næstu viku og eru allar gellurnar að fara í próf nema þær Íris og Kristín Ósk sem eru í skóla lífsins. Það er brjálað að gera í skólanum þessa dagana og allar á fullu að enda síðustu skóladagana með stæl :)

Svo fer nú að styttast í sumarfríið og verðum við flestar komnar í sumarfrí 12.maí og það er flöskudagur þannig að þá er eiginlega skylda að halda upp á próflok :) er það ekki annars??

Annars eru 3 af okkur á leiðinni til útlanda núna í maí. Heiða er á leið til USA og Gréta og Kristín eru á leiðinni til Benidorm. Haldiði að það sé lúxus á þeim?? En það er annars ekki meira að frétta af gellunum í bili...Gangi ykkur vel í prófunum!


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 19:30:28 / habby

:)

GLEÐILEGT SUMAR ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 20:06:11 / habby

páskarnir gengnir í garð :)

Jæja þá eru páskarnir komnir og hafa einhverjar af okkur verið á djamminu. Nokkrar af okkur skelltu sér í lónið á miðvikudaginn og svo á ball á pöbbanum og þetta var bara mjög gaman. Hrafnhildur T kom með keflavíkur klíkuna með sér, ætli hún sé að reyna að koma þessum strákum á séns hérna í Grindó? eða ælti það sé orðið svo leiðinlegt að djamma í Kef að hún dregur þá bara með sér hingað í Grindó?? Hún er svo mikil strákastelpa, birtist bara allt í einu óvænt þarna!! :)

Svo var líka djamm í gær, ég held það sé bara satt sem sagt var einu sinni á bylgjunni, Grindvíkingar þurfa bara að heyra gott lag í útvarpinu og þá eru þeir dottnir í það.

En annars sé ég að það eru 7 heimsóknir í dag og vil ég biðja ykkur um að skrifa í gestó svo við sjáum hverjir eru að kíkja hérna á síðuna.

En við gellurnar viljum bara óska öllum Gleðilega páska og gangið hægt í gegnum gleðinnar dyr og ekki borða yfir ykkur af páskaeggjum :)

                               


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 01:34:27 / habby

Það styttist í páskana

Jæja skvísur! Er ekki málið að detta í það um páskana og reyna að hittast eitthvað? Hvað segiði um miðvikudagskvöldið 12/4?? Það er örugglega eitthvað að gerast þá, frí hjá öllum á fimmtudag og svona :)

Íhugið það allavega. Er búin að breyta um lit eins og þið sjáið enda er komin alveg þokkalegur páskafílingur í mig. En svo eitt, þá vantar bara mynd af Grétu hérna neðst til hliðar, um okkur?? Þannig að ef þið finnið einhverja mynd af skvísunni á netinu þá endilega skellið henni hérna inn á. Koma svo og reyna að blogga annars verður þessari síðu bara eytt út á endanum.

kv. HG


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 19:54:33 / habby

.......



!  Halló!

Bara að tékka hvort við séum virkilega dauðar ;)




» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 21:36:52 / Hrafnhildur T

2 og hálfur tími...

Farin að telja niður í ríkið HG?? ;)

>

>


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 23:29:03 / habby

Sumarbústaðaferð!

SÆLAR

JÆJA STELPUR! ERUÐI TIL Í SUMARBÚSTAÐAFERÐ EÐA EKKI?? ÞAÐ ER ALLTAF VERIÐ AÐA TALA UM AÐ FARA ALLAR SAMAN Í SUMBÓ EN SVO VIRÐIST ENGIN HAFA ÁHUGA Á ÞVÍ ÞEGAR VIÐ LOKS HÖFUM TÆKIFÆRI TIL AÐ FÁ LÁNAÐAN BÚSTAÐ!

HVAÐ SEGIÐI UM ÞETTA? EIGUM VIÐ AÐ FARA EÐA EKKI?

HVAÐ SEGIÐI UM HELGINA 24-26.MARS?

KOMMENTIÐ NÚ!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 19:29:41 / habby

Hún á afmæli í dag :)

Já hún Heiða á afmæli í dag. Hún er elsta gellan í hópnum. Til hamingju með daginn Heiða!!

Sumar af gellunum ætla að kíkja út í kvöld og fá sér bjór í tilefni dagsins :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 23:27:06 / habby

djamm,djamm,djamm

Það var meiri hluti gellanna að skemmta sér um helgina. Hrafnhildur var að djamma í Kef, eins og vanalega. Og frétti ég að allt hafi farið friðsamlega fram í Keflavík þannig að Hrafnhildur hefur ekki verið með nein læti :P

Ég og Gústa fórum niðrí bæ og hittum Elvu og Mörtu á Ara og var bara fín stemming á Ara, eins og yfirleitt.

Gréta fór á árshátíð með Rónaldi sínum og hún var orðin svo full um miðnætti að hún fór bara upp á hótel að sofa.

Heiða var að vinna á salthúsinu sem....

held afram með þetta a morgun


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:45:17 / habby

7-9.apríl??? eruði til?

Já það er komin hugmynd að því að skella okkur í sumarbústað á Þingvöllum þegar páskafríið byrjar.. Hvernig líst ykkur á það?? fara við allar 9 saman, á föstudegi og koma heim á sunnudeginum 9.apríl.

Allar að reyna að kommenta....


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5